Júní 2008

6.-8. júní 2008

Um helgina fóru Ásdís, Hanna Lilja, Katrín og Þorvaldur og klifruðum í Munkaþverá. Komum á föstudagskvöldinu og tjölduðum í Hrafnagili, vorum n.b. eina tjaldið á tjaldstæðinu. Á laugardaginn var vaknað of snemma af sumra mati en það var eiginlega ekki hægt að sofa lengur vegna hita, það er ekki sniðugt að tjalda þannig að svefntjaldið snúi í austur...En hvað með það. Fórum um morguninn í Munkaþverá og klifruðum nokkrar leiðir, fórum öll Talíuna og svo fóru flestir Sófus og Bláu ullina eða Hornið, erum ekki alveg viss hvaða leið þetta var. Um hádegið komu Hildur og Ottó og príluðu. Um þrjú leytið fór svo að hvessa og kólna svo að við drifum okkur í sund, reyndar var hópur Ársælinga kominn svo að þetta var orðið fínt :)
Síðan grilluðum við í Kjarnaskógi sem var mjög fínt. Enduðum á að grilla banana með/án súkkulaðis. Miklar umræður voru um hvernig ætti að grilla banana og berum við enga ábyrgð á þeim hjónaskilnuðum sem gætu orðið í kjölfar þessa.
Við vorum búin að spá rigningu eða þ.e.a.s. Belgingur spáði rigningu kl. 21.00 á laugardagskvöldinu. Klukkan 20.58 byrjaði að rigna og rigndi meira og minna alla nóttina...En tjaldið mitt hélt allri rigningunni, sem betur fer :)
Á sunnudaginn var ekkert frábært veður þannig að við kíktum í sund, gengum frá og brunuðum í bæinn. Að sjálfsögðu voru samt nokkur matar- og pissustopp...


13.- 16. júní 2008

Á föstudaginn var haldið í Þjóðhátíðarferð HSSR. Af lufsunum fóru við Katrín. Í allt fóru um 25 manns. Lagt var s.s. af stað á föstudaginn og keyrt sem leið lá austur. Við Katrín vorum í tvistinum ásamt Snorrvaldi og Dóra ásamt um 800 L af olíu í eftirdragi Eftir stífa keyrslu var tjaldað á (...). Á laugardaginn var svo keyrt upp í Jöklasel og þaðan upp á jökul. Laugardagurinn fór í skíðun og keyrslu. Þeir hörðustu voru á skíðum frá Jöklaseli og upp að Þumli enda var frábært veður í alla staði. Um kvöldmatarleytið komum við að Þumli. Tjaldbúðir voru reistar í þvílíkri rjómablíðu. Því næst var dýrindis læri ásamt meðlæti borðað, kokkarnir eiga mikið hrós skilið. Eftir át, klósettsmíði og fleira nauðsynlegt var lagst í rekkju. 
Sem fyrr stuðluðum við að hjónaskilnaði milli Hildar og Ottó en þau sváfu með okkur Katrínu í tjaldi. Þar sem að við fórum snemma inn í tjald fórum við í leik þar sem að við áttum að finna persónu, föt og borg sem byrjar á stafnum (...). Upp kom stafurinn H.Ottó var snöggur að finna allt og byrjaði að þylja upp borgina og fötin en þegar kom að persónunni nefndi hann Hönnu Lilju en ekki Hildi. Þess má geta að Hildur lá hliðina á honum/ofan á honum og fékk Ottó einn fastan löðrung, í það minnsta illt augnaráð...Ekki batnaði svo í því seinna um nóttina þegar að Ottó greyinu varð kalt. Sagði hann við Hildi að sér væri kalt og vildi skipta um pláss, s.s. setti Hildi á kalda staðin...
Daginn eftir vöknuðu allir snemma í svitakófi, Snorrvaldur, ótrúlegt en satt svaf samt "langt" fram eftir degi. Síðan tók skíðun við fram að hádegi. Eftir hádegismat var lítið skíðað sökum þoku og leiðinda og var fljótlega ákveðið að snúa við í tjaldbúðir. Þar sem að veðrið var með leiðinlegra móti var ákváðum við að taka tjöldin niður og bruna niður af jökli. Við Katrín vorum í tvistinum ásamt Snorrvaldi og Dóra og svo var Ottó aftan í á skíðum. Ferðin gekk ágætlega framan af en svo fór að síga á ógæfuhliðina. Við byrjuðum á að festa okkur svo að við þurftum að bakka en það gekk ekki betur en svo að spottinn sem Ottó hélt sér í festist í aftari hjörulið (leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál). Eftir smá vesen og skrið undir bílnum og grænt ljós frá Baldri héldum við af stað. Reyndar fór önnur pakkdósin en það var samt í lagi. Næstu hundrað metrar gengu ágætlega þar til að við náðum að festa jeppann...aftur. Ýmislegt var reynt, bakka og hamast, snjósæti, Ottó var misþyrmt við lítinn árangur og  í lokin var náð í akkeri og spilið fest í. Það ákvað hins vegar að gefast upp. Það vildi samt svo heppilega til að þegar við ætluðum að fara að moka þá sáum við í Bola svo að þá var bara beðið eftir honum. Eftir mjög erfiða 200 metra þá komumst við loksins á skrið. Við komum niður í Jöklasel um kvöldið og þá tók við smá bið og bollaleggingar. Ákveðið var að tjalda á Hrolllaugsstöðum. Það var góð ákvörðun því að það rigndi alla nóttina og daginn eftir, s.s. á mánudeginum. Yfir morgunmatnum voru málin rædd og komist að þeirri niðurstöðu að gáfulegast væri að bruna í bæinn strax, degi á undan áætlun. 
Ferðin var vel heppnuð í alla staði ef við sleppum að horfa á veðrið sem hefði mátt vera aðeins blíðara við okkur en það er svo sem ekki hægt að stjórna því :)



17. júní 2008

Þennan dag voru Elísabet og Katrín mjög uppteknar við skátastörf. Skátafélagið Mosverjar sá um hátíðarhöldin á 17. júní í Mosó og var margt um mannin. Eftir erfiðan dag ákváðu þær þó að þrátt fyrir smá golu væri réttast að bregða sér í miðnæurklifur í Valshamarinn og buðu Ingu, Hönnu Kristínu og Hlyn með. Þar voru tvær leiðir leiddar og mikil öskur í kringum kóngulærnar sem eiga sér þar bólfestu. Jeppinn hennar Elísabetar stóð sig með eindæmum vel þrátt fyrir að vera ekki upphækkaður ;)
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 6
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 12329
Samtals gestir: 3380
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 20:19:09