Október 2008
Helgin 10 - 12. október
Föstudaginn síðastliðinn héldu 34 félagar HSSR upp í Kerlingafjöll. Af lufsunum fóru Ásdís, Hanna Lilja og Katrín en Elísabet var í sumarbústað. Við komum upp í Kerlingafjöll á föstudagskvöldinu og þá var strax hafist handa við að finna skála og reyna að koma rafstöðinni í gang. Eftir að Eyþór var búinn að skoða öll húsin með tölu komst hann loksins að niðurstöðu. Nýliðarnir voru í stóra skálanum og við hin skiptum okkur niður í 3 a-hús. Rafstöðin komst ekki í gang þetta kvöldið.
Daginn eftir var ræs kl. 7.30 og héldu allir í okkar húsi að brottför væri klukkan 10 en það var víst stórmisskilningur. Á laugardeginum var s.s. gengið upp á Mæni, síðan niður í Hveradal þar sem við áðum og svo var rölt í skálann. Veðrið var fínt þrátt fyrir að myndirnar sýni kannski annað. Eftir gönguna tóku við teygjuæfingar, hafragrautsát, spilamennska í ísköldum stóra skála og margt fleira fram að mat. Í matinn var svo hinn hefðbundni matur, lambalæri, kartöflugratín, köld piparsósa og fleira góðgæti. Við lufsurnar grilluðum í eftirrét dýrindis banana með súkkulaði. Eftir matinn tók við spilamennska og umræða um ástandið í þjóðfélaginu, einkar áhugaverðar umræður það. Danni tók svo að sér að kenna okkur tengingaspil sem verður endurtekið á árshátíðinni, bíðið spennt.
Seint á laugardagskvöldinu komu Baldur og Snorrvaldur á fjórhjólum og jeppa.
Daginn eftir var pakkað saman, keyrt af stað og síðan labbað að flúðunum/fossinum Ábóta. Við Katrín og Ásdís lögðum af stað frá Ábóta á undan hinum og fórum ekki alveg auðveldustu/þurrustu leiðina en við vorum bara að athuga hvort að hinir myndu elta í blindni. Á leiðinni í bílana komust stelpurnar einnig að því að ég þarf að læra að ganga, ég var sú eina sem var með drullu upp á hné.
Heimleiðin gekk vel að flestu leiti. Þristurinn þurfti að snúa við hjá Geysi til að hjálpa bíl sem var fastur í Hvítá og bíllinn hans Dóra varð olíulaus. Dóri og kó voru þó komnir í bæinn aftur á skikkanlegum tíma, eða um 11 leytið :P

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 12348
Samtals gestir: 3388
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 21:34:46