Janúar 2009
Mikið skíðað og soldið klifrað í janúar.
15. janúarÞennan laugardag var haldið eldsnemma upp á M6 en þar hittist fjöldi fólks til að skella sér á heimsfræga fjallið Heklu. Dótinu var hent inn í bílana og lagt af stað suður. Leiðin að Galtarlæk gekk vel en eftir það hægðist soldið á ferðinni, að lokum var ákveðið að leggja áður en komið var að hrauninu sem lá fyrir framan skessuna stóru og arka bara yfir það á tveim jafnfljótum. Þegar komið var yfir hraunið lá leiðin upp á þá stóru og var mjög misjafnt hvernig menn voru búnir, sumir á fótunum, sumir með bretti á bakinu og aðrir á skíðum. Gekk ferðin mjög vel upp helmingin af fjallinu en þegar þangað var komið var ákveðið að helmingurinn myndi snúa við og þeir sem vildu gætu haldið áfram. Komið var upp á topp hinnar gríðarlegu Heklu um 4 eða 5 leytið, stoppað í 5 mínútur til að gæða sér á nesti og loks brunað niður aftur því hann tók óðfluga að dimma. Komum aftur að hrauninu í svartamyrkri og hófst þá síðasti spottinn aftur að bílunum. Þegar þangað kom voru bílarnir þegar kveiktir enda helmingurinn þá þegar komnir og allir tilbúnir til að arka heim.
Mjög svo skemmtileg ferð :D


30-31. janúar
Á föstudagskvöldið hittumst Villa, Jón, Laurent og ég á M6, tókum til draslið okkar og keyrðum upp í Bláfjöll. Þar fundum við okkur ágætis brekku með nógu djúpum snjó og hófumst handa við að grafa snjóhús. Að vísu var akkúrat þessi hóll í miðjum vélsleðaförum og lá við að förin lægju akkúrat þangað úr öllum áttum. Við létum það ekki á okkur fá og grófum eins og brjálæðingar þar til hinu fullkomna snjóhúsi var náð, forstofa og tvö svefnherbergi. Ekkert mál að gista í svoleiðis lúxus þó að vísu þurfi að endurhugsa ýmsar hugmyndir. Þetta tók okkur einungis 4 tíma og svo hófst eldun á gómsætum carbonara og parmesana pasta með ítalskri salami, rjóma og piparosti. Í eftirrétt að sjálfsögðu jógúrtterta :D
Á laugardeginum fórum við svo í Bláfjöll þar sem við hittum Trausta, Danna og Hönnu Lilju, en Villa og Laurent héldu sig í barnabrekkunum þar sem þau hafa varla stigið á skíði áður. Mjög mikil traffík var í bláfjöllum, raðirnar korters til tuttugu mínútna langar.
Þess vegna ákváðum við Trausti að skella okkur bara á gönguskíði á sunnudaginn. Fórum 10 kílómetra hring sem liggur bak við Bláfjöll og til baka, mjög skemmtilegur hringur einkum þegar skyggni og traffík er ekki hagstæð. Esja mín var með í för og dró mig áfram, annars hefði ég nú aldrei haldið í við offvirka gaurinn sem fór með mér!!!
myndir inná facebook
